Heim arrow Gámaþjónustan
Gámaþjónustan hf  
Gámaþjónustan hf.
Skrifstofa opið 8 - 16
Súðarvogi 2, 104 Reykjavík
S: 535-2500 - F: 535-2501 gamar@gamar.is
Söludeild opið 8 - 17
Hringhellu 6, 221 Hafnarfjörður  
S: 535-2510 - F: 535-2536
soludeild@gamar.is
Stjórnstöð  opið 7 - 18
Berghellu 1, 221 Hafnarfjörður  
S: 535-2509/2511  F: 565-8239
afgreidsla@gamar.is
Vaktsími frá kl. 18:00 til 24:00:
660-2800

 
Bætt umhverfi – betri framtíð.

Gámaþjónustan hf var stofnuð árið 1983 af Benóný Ólafssyni og hóf fyrirtækið starfsemi árið 1984. Fyrirtækið hefur frá upphafi verið leiðandi í alhliða umhverfisþjónustu og lagt áherslu á fljóta og góða þjónustu. Fyrirtæki í þessari starfsgrein þurfa að vera fljót að laga sig að aðstæðum og breyttum kröfum til að svara kalli tímans. Það hefur Gámaþjónustan gert með því að fylgjast með framvindu tækni á öllum sviðum starfsseminnar og nýtt hana til forystu í greininni. Gámaþjónustan hf rekur fullkominn jarðgerðarbúnað sem eykur  möguleika sveitarfélaga, fyrirtækja og stofnana til endurnýtingar  á lífrænum efnum. Þá má nefna sérhannað upplýsingakerfi með möguleikum á að veita viðskiptavinum beint upplýsingar um viðskipti sín sem tengjast umhverfismálum. Einnig er í notkun fullkomið GPS kerfi fyrir stjórnun aksturs um allt land.

Árið 2006 hófst nýr kafli í söfnun endurnýtalegra efna með markaðssetningu Gámaþjónustunnar á Endurvinnslutunnunni sem hefur verið í mikilli sókn síðan. Einkunnarorð Gámaþjónustunnar varðandi Endurvinnslutunnuna eru: „Ábyrg örugg endurvinnsla.″

Dótturfélög innanlands eru nú sex talsins, fimm í alhliða umhverfisþjónustu og eitt í gáma/gámahúsaleigu ásamt sölu á ýmsum umhverfistengdum vörum. Gámaþjónustan er einnig með tengdan rekstur í Litháen og Lettlandi sem rekinn er í samvinnu við heimamenn í þessum löndum.

 
Gámaþjónustan | Súðarvogi 2 | 104 Reykjavík | Sími 535 2500 | Fax 535 2501 | netfang: gamar[hjá]gamar.is | © 2007

Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun