Leiðbeiningar fyrir endurvinnslutunnuna  

Náðu í prentvænan miða hér (pdf)

ENGLISH

POLISH

Við spörum þér sporin með Endurvinnslutunnunni!

Í endurvinnslutunnuna má fara án plastpoka beint í tunnuna:

  1. Dagblöð og tímarit.
  2. Skrifstofupappír, bæklingar, umslög og ruslpóstur.
  3. Pappi, s.s. hreinir pizzukassar og morgunkornspakkar.

Auk þess má setja í tunnuna, í plastpoka (helst glæra) sem bundið er fyrir (Eina tegund í hvern poka):

  1. Málma, s.s. niðursuðudósir og lok af glerkrukkum.
  2. Fernur
  3. Plastumbúðir, s.s. sjampóbrúsa, plastdósir, plastpoka og plast með eftirfarandi merkingum:
  4. Rafhlöður í bláum sérmerktum plastpokum.

Gler má ekki fara í tunnuna vegna slysahættu við flokkun!


 
Gámaþjónustan | Súðarvogi 2 | 104 Reykjavík | Sími 535 2500 | Fax 535 2501 | netfang: gamar[hjá]gamar.is | © 2007

Netvistun - Heimasíðugerð, hugbúnaðarlausnir og hönnun